Helgi Guðjónsson & Nikolaj Hansen framlengja

Gleðitíðindi úr Víkinni en framherjarnir okkar þeir Helgi Guðjónsson og Nikolaj Hansen hafa framlengt samninga sína við knattspyrnudeild Víkings til ársins 2025.

Helgi Guðjónsson er fæddur árið 1999 og gekk til liðs við Víking frá Fram árið 2019 eftir glæsilega frammistöðu með Fram það árið þar sem hann skoraði 19 mörk í 25 leikjum. Hann hefur síðan leikið 88 leiki með Víking og skorða í þeim 34 mörk fyrir félagið. Helgi hefur verið mikilvægur leikmaður fyrir Víking og skorað mörg afar þýðingarmikil mörk.

Nikolaj Hansen er danskur markaskorari fæddur árið 1993 sem allir Víkingar þekkja, en hann var markakóngur Pepsi Max deildarinnar árið 2021 þegar Víkingur varð Íslands- og bikarmeistari. Niko gekk til liðs við Víking um mitt sumar árið 2017 og hefur hann síðan spilað 145 leiki og skorað 51 mörk fyrir félagið.

Þetta eru vissulega gleðitíðindi fyrir alla Víkinga!

Aðrar greinar

Forsíðufrétt, Félagið, Handbolti

Hafdís og Jóhann Reynir leikmenn tímabilsins í handboltanum

Lesa nánar
Knattspyrna, Forsíðufrétt

Viktor Örlygur framlengir

Lesa nánar
Knattspyrna, Forsíðufrétt

Lárustofa opnuð formlega

Lesa nánar
Knattspyrna, Forsíðufrétt

Júlía Ruth til Víkings

Lesa nánar
Forsíðufrétt, Handbolti

Aðalfundur Handknattleiksdeildar Víkings og BUR Hnd.

Lesa nánar
Knattspyrna, Forsíðufrétt

Fyrsta æfingin hjá Ali Al-Mosawe (ALMO)

Lesa nánar