Hilmir Christiansen skrifar undir sinn fyrsta samning

Hilmir Christansen (2010) hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við Víking og gildir hann út 2028.

Gefum Kára Árnasyni yfirmanni knattspyrnumála orðið

Hilmir er uppalinn Víkingur og er framherji. Gríðarlega kröftugur strákur, fljótur og sterkur. Það verður mjög spennandi að fylgjast með honum í framtíðinni og er hann nú þegar byrjaður að banka á dyrnar í meistaraflokki félagsins og var m.a. í hóp á móti KR.

Knattspyrnudeild Víkings óskar Hilmi innilega til hamingju með sinn fyrsta samning og við hlökkum til að sjá hann á Heimavelli Hamingjunnar á næstu árum. ❤️🖤

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Sveinn Aron Guðjohnsen í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Erlingur Agnarsson til FH

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Hrannar Snær í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Thea Rhode til Víkings

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Sigurborg Katla á láni til FH

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Saana Tuomala til Víkings