Í Víkinni er líf og fjör frá morgni til kvölds, virka daga sem helga. Fólk á öllum aldri hreyfir sig í heilsubótarskyni, æfir stíft keppnisíþróttir og allt þar á milli.
Í Víkini er að finna sal til innanþússíþrótta af ýmsu tagi og á vallarsvæðinu utan dyra er knattspyrnuvöllurinn glæsilegi með stúku sér við hlið, gervigrasvöllur, grasvöllur til æfinga og tennisvellir. Svo má ekki gleyma hátíðarsalnum þar sem margur maðurinn hefur fagnað merkum áfanga í lífi sínu eða annarra:, til dæmis stórafmæli eða fermingu.
Víkingur leigir sömuleiðis út sali fyrir fundi eða aðrar samkomur og mannfagnaði.
Hægt er að hafa samband við skrifstofu Víkings í sima 519-7600 eð senda tölvupóst á [email protected]