Víkingur

Skipurit

Hvernig Knattspyrnufélagið Víkingur er rekið: aðalstjórn, framkvæmdastjóri, fjögur stoðsvið og deildirnar átta. Samþykkt af aðalstjórn 26. mars 2026.

Stjórnskipulag

Stoðsvið

Fjármálastjóri

Fjármála- og rekstrarsvið

Yfirumsjón með fjármálum deilda og aðalstjórnar. Tryggir reglulega upplýsingagjöf til aðalstjórnar og stjórna deilda um þróun rekstrar og efnahags deilda og aðalstjórnar. Hefur yfirumsjón með innheimtu æfingagjalda og annarra viðskiptakrafna. Ber ábyrgð á og hefur eftirlit með lausafjárstöðu félagsins og lausafjárstýringu hverju sinni. Tryggir að deildir fylgi reglum um meðferð fjármuna og hefur eftirlit með því að þeim reglum sé fylgt.

Lykilverkefni
  • Ársuppgjör
  • Mánaðarleg rekstraryfirlit
  • Rekstraráætlanir
  • Færsla bókhalds
  • Innheimta æfingagjalda
  • Greining lykiltalna í rekstri
  • Eftirfylgni með verklagsreglum um fjármál og bókhald
Yfirmaður mannvirkja

Mannvirkjasvið

Dagleg umsjón og stýring fasteigna félagsins hverju sinni, sem og samskipti við Reykjavíkurborg og eftir atvikum við héraðssamband og svæðisfulltrúa vegna þeirra. Umsjón og viðhald æfinga- og keppnisvalla. Ábyrgð á ræstingu og þeirri þjónustu sem veitt er í þeim húsum og hver heildarásýnd þeirra er og hver hún skal að vera. Annast útleigu þessara eigna og samskipti við leigutaka. Ber ábyrgð á starfsmannamálum og starfsmannahaldi í íþróttahúsum á vegum félagsins.

Lykilverkefni
  • Umsjón með mannvirkjum
  • Viðhald fasteigna
  • Umsjón og viðhald æfinga- og keppnisvalla
  • Veislusalir innan félags
  • Vaktaplön og þrifplön
  • Innkaup á rekstrarvöru
  • Mannvirkjadagatal í Sportabler
Íþróttastjóri

Íþrótta- og afrekssvið

Hefur umsjón og eftirlit með mótaðri íþrótta- og þjálfunarstefnu félagsins sem fram kemur í íþróttanámskrá. Þá fer íþróttasvið með umsjón og eftirfylgni með afreksstefnu Víkings. Íþróttasvið vinnur að forvörnum og fræðslu innan félagsins. Ber að tryggja að þjálfarar deilda þekki og framfylgi gildum félagsins. Hefur yfirumsjón með tímaúthlutunum deilda í íþróttahúsum bæjarins. Hefur yfirsýn yfir alla þjálfara félagsins og færni þeirra. Annast samskipti við ÍSÍ, sérsambönd og aðra sem tengjast íþrótta- og æskulýðsstarfsemi í landinu. Er tengiliður félagsins og aðstoðar deildir við mótahald.

Lykilverkefni
  • Faglegt starf
  • Barna- og ungmennastarf
  • Afreksstarf
  • Æfingatöflur
  • Íþróttaskólar
  • Íþróttir eldri borgara
  • Fræðsla og forvarnir
  • Upplýsingagjöf í gegnum Sportabler

Sölu- og markaðssvið

Umsjón með markaðsstefnu og upplýsingagjöf á miðlum félagsins. Standa vörð um ímynd félagsins og leita leiða til að auka tekjuöflun félagsins. Sviðið sinnir sölu- og markaðssetningu fyrir mannvirki félagsins fyrir hvers kyns viðburðahald; veislusali, íþróttasali og íþróttasvæði félagsins í heild. Sölu- og markaðssvið liðsinnir deildum í hvers kyns fjáröflunar- og viðburðahaldi og sinnir skyldum og samskiptum gagnvart helstu samstarfsaðilum félagsins í samráði við deildir.

Lykilverkefni
  • Sala og markaðssetning
  • Standa vörð um ímynd félagsins
  • Almennar auglýsingar og upplýsingar á heimasíðu og samfélagsmiðlum
  • Tekjuöflun
  • Samstarfsaðilar: viðhald og eftirfylgni samninga
  • Aðstoð við fjáraflanir og viðburðahald