Iðkendur

Æfingatafla fyrir Tennisdeild Haust 2023

Æfingar hefjast fimmtudaginn 1. september
Markmið
Markmið okkar er að tryggja öllum vandaða kennslu í skemmtilegu umhverfi með áherslu á framfæri hvers nemenda fyrir sig. Tennisþjálfarar eru Raj K. Bonifacius, sem hefur þjálfað landsliðið í 25 ár og er með hæstu þjálfara réttindi frá Alþjóða Tennissambandsins (ITF Level 3) & Professional Tennis Registry (Professional); Rafn Kumar Bonifacius hefur tólf ára reynslu sem þjálfari með tennisþjálfara réttindi frá Tennissambandi Íslands og er núverandi Íslandsmeistari í karlaflokki

Æfingarnar eru haldnar á tveimur stöðum – íþróttahús Réttarholtsskóli í Reykjavík (Réttarholtsvegi 21-25, 108 Reykjavík, hefst fimmtudaginn, 1.september) og Tennishöllinni í Kópavogi (Dalsmári 13, 201 Kópavogur, hefst 2.september). Tennisskólinn skaffar spaðar & bolta en það sem þarf að eiga eru innanhúss íþróttaskór og leikfimisföt. Æfingar eru opnar fyrir alla. Æfingatímar eru frá kl.16 – 20 í Íþróttahús Réttarholtsskóli í Reykjavík á Mánudögum og Fimmtudögum og frá kl.15.30 – 18.30 á Þriðjudögum, Miðvikudögum, Föstudögum og frá kl.10.30-12.30 á Sunnudögum í Kópavogi.

 

Æfingar

DAGUR TÍMI STAÐUR
Mánudagur 16:00 - 20:00 Íþróttahús Réttó
Þriðjudagur 15:30-18:30 Tennishöllin í Kópavogi
Miðvikudagur 15:30-18:30 Tennishöllin í Kópavogi
Fimmtudagur 16:00-20:00 Íþróttahús Réttó
Föstudagur 15:30-18:30 Tennishöllin í Kópavogi
Sunnudagur 10:30-12:30 Tennishöllin í Kópavogi