Birta og Freyja í 100-leikja klúbbinn

Kæru Víkingar. Þær Freyja Stefánsdóttir og Birta Birgisdóttir voru fyrir leik Víkings og FH heiðraðar fyrir 100 leiki með meistaraflokki Víkings, en þær náðu báðar þeim áfanga í leiknum á móti Val fyrir nokkrum dögum. Þær eru númer 27 og 28 af leikmönnum kvennaliðs Víkings til að ná þessum áfanga, en tæp 20 ár eru síðan Ellen Bjarnadóttir var fyrst til þess. Áfanganum fylgir sú nafnbót að vera tekin inn í klúbb „Skjaldarhafa“, en af núverandi liðsfélögum voru þar fyrir þær Emma, Dagný og Bergdís. Freyja og Birta eiga sér aðeins mismunandi feril með Víkingi og verður hér stiklað á stóru.

Birta gekk til liðs við Víking fyrir tímabilið 2023 eftir að hafa leikið með Haukum tímabilið áður og Gróttu árið þar áður. Meistaraflokksferil sinn hóf hún 14 ára gömul með Augnablik eftir að hafa spilað með Breiðabliki og Þrótti í gegnum yngri flokka. Alls á hún fyrir 105 leiki í meistaraflokki með þessum liðum. Hún á jafnframt leiki í ameríska háskólaboltanum, en hún spilaði 18 leiki fyrir Jacksonville State í NCAA haustið 2022.

Birta hefur átt mikilli velgengni að fagna með Víkingum, en fyrsta árið varð hún Mjólkurbikarmeistari með liðinu ásamt því að vinna bæði Lengjubikar B og Lengjudeildina og fara með liðinu upp í Bestu deildina. Vorið 2024 tryggði liðið sér svo sigur í leik Meistara Meistaranna, ásamt því að ná sínum besta árangri frá upphafi, 3. sæti í efstu deild í lok þess tímabils. Tveir Reykjavíkurmeistaratitlar eru einnig í verðlaunasafninu frá þessum árum.

Birta var á sínum tíma valin í úrtakshóp yngri landsliða og á fjölda Íslandsmeistaratitla með Breiðablik bæði í 2. og 3. flokki. Birta hefur alla tíð verið á meðal þeirra leikmanna sem spilað hafa flesta leiki á hverju tímabili og er í dag sú tíunda leikjahæsta í sögu Víkings í efstu deild, en meiðsli í lok tveggja síðustu tímabila komu í veg fyrir að hún næði þessum 100-leikja áfanga enn fyrr.

Freyja hóf sinn knattspyrnuferil með Víkingum og lék með þeim upp í gegnum alla yngri flokka og varð m.a. Íslandsmeistari með 5. flokki 2019 og Reykjavíkurmeistari með 2. flokki 2023. Hún skrifaði undir sinn fyrsta samning við félagið 2022, þá 14 ára gömul, yngst allra leikmanna til þess. Hún spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik á móti Fylki í Reykjavíkurmóti í upphafi árs 2023. Fyrsta árið spilaði hún 32 leiki með meistaraflokki en einungis tveir leikmenn spiluðu fleiri leiki það tímabilið. Sama ár spilaði hún einnig nokkra leiki með bæði með 2. og 3. flokki og 11 leiki með yngri landsliðum (U16, U17 og U18), eða samtals 51 leik.

Freyja státar af sömu titlum og afrekum með Víkingum síðustu árin en auk þess hefur hún verið að setja þau nokkur mörkin. Það eftirminnilegasta gerði hún í bikarúrslitaleiknum á móti Breiðablik 2023, þegar hún gulltryggði sigurinn, nánast með sinni fyrstu snertingu. Fyrsta markið í Bestu deildinni kom í leik á móti Tindastóli 2024 og mark númer tvö kom svo á móti Þór/KA þegar hún tryggði Víkingum 3. sætið í deildinni og besta árangur félagsins frá upphafi. Fyrsta þrennan kom í leik á móti Fram í Reykjavíkurmótinu í vor. Freyja skoraði svo fyrsta markið í Bestu-deildinni í sumar og hefur síðan bætt fjórum við og er í dag á meðal markahæstu leikmanna í deildinni. Freyja er líkt og Birta á meðal leikjahæstu leikmanna Víkings í efstu deild og situr nú í fimmta sæti, með 48 leiki.

Freyja var árið 2024 valin efnilegasti leikmaður meistaraflokks Víkings. Hún hefur leikið alls 32 leiki með yngri landsliðum Íslands og er þar í hópi leikjahæstu leikmanna liðsins sem er á leið á lokamót EM U19 nú í lok júní.

Víkingar óska Freyju og Birtu innilega til hamingju með áfangann og vonast til að sjá þær spila marga leiki til viðbótar fyrir félagið.

Til hamingju, Freyja og Birta og áfram Víkingur. ❤️🖤

Myndir og texti : Óðinn Þórarinsson ❤️🖤

Aðrar greinar

Forsíðufrétt, Handbolti

Elías Ingi Gíslason gengur til liðs við Víking

Forsíðufrétt, Handbolti

Kristján Rafn Oddsson gengur til liðs við Víking

Forsíðufrétt, Handbolti

Elvar Otri Hjálmarsson gengur til liðs við Víking

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Ögmundur Kristinsson í Hamingjuna

Forsíðufrétt, Handbolti

Uppskeruhátíð barna- og unglingaráðs í handbolta

Forsíðufrétt, Handbolti

Dagbjört ráðin sem markaðs- og sölufulltrúi og verkefnastjóri BUR