Víkingur

Handbolti · 27. nóv 2026

Áramótahappdrætti Víkings

Handknattleiksdeild Víkings hefur nú aftur sína árlegu happdrættissölu. Að þessu sinni eru alls 75 glæsilegir vinningar í boði og nemur heildarverðmæti þeirra 1.004.372 kr.

Miðaverð er aðeins 2.500 kr. og á næstu dögum munu iðkendur deildarinnar ásamt leikmönnum meistaraflokka bjóða miðana til sölu.

Dregið verður úr öllum seldum miðum þann 15. janúar 2027.

Hér að neðan má sjá vinningaskrá áramótahappdrættisins. Við hvetjum alla til að taka vel á móti sölufólki í hverfum Víkings og styðja um leið við öflugt starf handknattleiksdeildar Víkings.

Áhugasamir um að kaupa miða geta einnig haft samband í tölvupósti á: [email protected]

Við þökkum kærlega fyrir stuðninginn! ❤️🖤

Vinningaskrá!