
Knattspyrnufélagið Víkingur leitar að hæfum og metnaðarfullum þjálfara til að stýra heilsueflingu fyrir 60 ára og eldri í íþróttahúsi félagsins í Virkinu, Safamýri 26. Um er að ræða hlutastarf en kennt verður tvisvar í viku í u.þ.b. klukkutíma í senn.
Knattspyrnufélagið Víkingur var stofnað árið 1908 og er í hópi elstu og öflugustu íþróttafélaga landsins. Innan félagsins hafa kynslóðir alist upp í gegnum starf sem byggir á virðingu, fagmennsku og góðum árangri. Þjálfari 60 ára og eldri hjá Víkingi mun stýra heilsueflingu sem mun hafa það að markmiði að iðkendur haldi styrk, þoli og liðleika.
Helstu verkefni og ábyrgð:
· Stýra og setja upp reglulegar æfingar í heilsueflingu fyrir 60 ára og eldri
· Samskipti við iðkendur
· Taka þátt í markaðsstarfi fyrir heilsueflingu á vegum Víkings
· Vinna í góðu samstarfi við skrifstofu Víkings og þá sérstaklega Íþróttastjóra- og íþróttafulltrúa félagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
· Reynsla af kennslu og/eða þjálfun 60 ára og eldri er mikill kostur
· Íþróttafræði- og/eða þjálfunarmenntun er mikill kostur
· Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
· Jákvæðni og áhugi á skapandi og metnaðarfullu umhverfi
· Mjög góð íslenskukunnátta
· Lipurð og jákvæðni í samskiptum
· Hreint sakarvottorð
Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagbjört Lena Sigurðardóttir, íþróttafulltrúi Víkings, [email protected].
Umsóknarfrestur er til og með 13. mars 2026.
Allar umsóknir fara í gegnum Alfreð.