Camily Kristal Silva da Rocha til Víkings

Það eru fleiri góðar fréttir sem berast úr Hamingjunni en Camily Kristal Silva da Rocha hefur skrifað undir samning til næstu tveggja ára við Knattspyrnudeild Víkings.

Camily (f.2008) er ungur og ferskur leikmaður sem kemur til Víkings frá Þrótti og getur spilað stöðu bakvarðar eða á vængnum. Hún hefur spilað 23 meistaraflokksleiki og einnig hefur hún spilað 13 leiki fyrir yngri landslið Íslands og hefur skorað í þeim 1 mark.

Við erum afar ánægð að fá Camily til okkar, hún er með ferska fætur, kröftug og hæfileikarík og erum við spennt að sjá hana taka næstu skref í sínum ferli hjá okkur í Víkinni

segir Einar Guðnason þjálfari liðsins.

Vertu hjartanlega velkomin í Hamingjuna Camily ❤️🖤

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Telma Ívarsdóttir í Hamingjuna

Forsíðufrétt, Handbolti

Frábær árangur hjá yngri kvennaflokkum Víkings á Partille Cup

Knattspyrna, Forsíðufrétt, Handbolti

Víkingur og BUR bjóða upp á ný sumarnámskeið í ágúst

Forsíðufrétt, Handbolti

Gísli Seinar ráðinn sem þjálfari hjá Víkingi

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Eiður Orri Ragnarsson í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Hinrik Hrafnsson skrifar undir sinn fyrsta samning