Aðalfundur Knattspyrnudeildar Víkings haldinn

Knattspyrnudeild Víkings hélt aðalfund sinn í dag mánudag. Fundurinn var haldinn í hátíðarsal í Víkinni kl. 17:00. Fundarstjórn var í höndum Stefáns Geirs Þórissonar.
Helstu niðurstöður fundarins eru eftirfarandi:
Heimir Gunnlaugsson var kjörinn áfram formaður stjórnar knattspyrnudeildar Víkings til eins árs. Ásamt honum voru kosin í stjórn knattspyrnudeildar þau Sverrir Geirdal, Tryggvi Björnsson, Katla Guðjónsdóttir, Sváfnir Gíslason, Hrannar Már Gunnarsson, Gunnar Magnús Sch. Thorsteinson, Yngvi Halldórsson, Berglind Bjarnadóttir, Guðmundur Auðunsson og Kári Þór Guðjónsson.
Aðalsteinn Guðjónsson gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn knattspyrnudeildar og sem formaður barna- og unglingaráðs knattspyrnudeildar. Knattspyrnudeild Víkings þakkar Aðalsteini fyrir langvinnt og ómetanlegt starf fyrir félagið.
Hér mér finna ársreikning Knattspyrnudeildar fyrir árið 2025.

Aðrar greinar

Forsíðufrétt, Handbolti

Uppskeruhátíð barna- og unglingaráðs í handbolta

Forsíðufrétt, Handbolti

Dagbjört ráðin sem markaðs- og sölufulltrúi og verkefnastjóri BUR

Forsíðufrétt

Aðalfundur Knattspyrnufélagsins Víkings

Forsíðufrétt, Handbolti

Við þurfum á þínum stuðningi að halda!

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Sölvi Stefánsson í Víking

Forsíðufrétt

Ársskýrsla Knattspyrnufélagsins Víkings og ársreikningar 2025