Jóhannes Kristinn Bjarnason í Hamingjuna

Knattspyrnudeild Víkings tilkynnir að Jóhannes Kristinn Bjarnason hefur samið við félagið út árið 2029. Jóhannes hóf ferill sinn hjá KR í efstu deild karla á Íslandi þar sem hann vakti snemma athygli og sem unglingur fékk hann reynslu erlendis m.a. hjá IFK Norrköping í sænsku úrvalsdeildinni. Árið 2025 skrifaði hann undir hjá danska félaginu Kolding IF.

Jóhannes á einnig 28 leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands og hefur skorað í þeim 2 mörk.

Gefum Kára Árnasyni yfirmanni knattspyrnumála orðið.

Jói er drífandi leikmaður sem getur notað báðar lappir en er þó hægri fótar, heilt yfir mjög spennandi signing fyrir Víking og gríðarlega efnilegur leikmaður. Það verður gaman fyrir alla Víkinga að sjá hann í þeim svarta og rauða í sumar.

Vertu hjartanlega velkominn í Haminguna Jói. ❤️🖤

Aðrar greinar

Forsíðufrétt, Handbolti

Elías Ingi Gíslason gengur til liðs við Víking

Forsíðufrétt, Handbolti

Kristján Rafn Oddsson gengur til liðs við Víking

Forsíðufrétt, Handbolti

Elvar Otri Hjálmarsson gengur til liðs við Víking

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Ögmundur Kristinsson í Hamingjuna

Forsíðufrétt, Handbolti

Uppskeruhátíð barna- og unglingaráðs í handbolta

Forsíðufrétt, Handbolti

Dagbjört ráðin sem markaðs- og sölufulltrúi og verkefnastjóri BUR