Á fundi stjórnar handknattleiksdeildar Víkings var samþykkt að óska eftir því við HSÍ að lið meistaraflokks kvenna í handbolta fengi sæti í Grill 66 deild kvenna á komandi tímabili. Beiðni Víkings hefur nú verið samþykkt af hálfu HSÍ.
Það er einróma afstaða stjórnar handknattleiksdeildar að það samræmist betur metnaðarfullri vegferð félagsins að ungt lið meistaraflokks kvenna leiki í Grill 66 deild kvenna tímabilið 2026/2027. Lið Víkings samanstendur af ungum og efnilegum leikmönnum sem eru um leið metnaðarfullir og láta hag og framgang meistaraflokks kvenna sig mikið varða. Liðið er á spennandi en krefjandi stað í uppbyggingu sinni og er félaginu annt um að tryggja veg og vanda liðsins sem best, bæði innan vallar sem utan. Á sama tíma er mikill vöxtur í yngri flokka starfi Víkings, bæði hjá strákum og stúlkum, en iðkendur er nú um 550 talsins. Því er gríðarlega mikilvægt að vel sé haldið utan um uppbyggingu handboltastarfs í félaginu og er það trú handknattleiksdeildar að þessi niðurstaða sé best til þess fallin að byggja áfram upp öflugt handboltastarf í félaginu.
Áfram Víkingur!❤️🖤