Víkingur

14. sep 2026

Sigurður Páll valinn í Elítuhóp HSÍ

Sigurður Páll Matthíasson, leikmaður og fyrirliði meistaraflokks karla í handbolta, hefur verið valinn í Elítuhóp HSÍ.

Alls hafa 21 leikmaður verið valdir í hópinn, en þar má finna bæði leikmenn sem hafa þegar bankað á dyrnar hjá A-landsliðinu og efnilegustu leikmenn landsins sem eru að stíga sín fyrstu skref í Olísdeildinni.

Æfingarnar fara fram frá fimmtudeginum 17. september til laugardagsins 19. september í mannvirkjum Víkings!

Við óskum Sigurði Páli innilega til hamingju og hlökkum til að fylgjast áfram með honum!❤️🖤