Októberfest Víkings haldið 19. september

🍻 OKTÓBERFEST VÍKINGS – ÞETTA VERÐUR VEISLA!🍺
Laugardaginn 19. september verður alvöru Októberfest-stemning í Virkinu, Safamýri og þetta er kvöld sem enginn Víkingur má láta fram hjá sér fara! 🎉❤️🖤
🚪 Húsið opnar kl. 18:00
🍽️ Borðhald hefst kl. 19:00
🎉Veislustjóri er enginn annar en Fannar Sveinsson úr Hraðfréttum!
🎶 Andri trúbador mætir á svæðið og sér um að halda uppi stuðinu langt fram eftir kvöldi!
Boðið verður upp á alvöru þýska Októberfest-stemningu með góðum mat frá Pylsumeistaranum og Björnsbakaríi, ekta þýskum bjórum og auðvitað frábærum félagsskap. 🍻🥨
💰 Miðaverð: 5.500 kr.
👥 8 manna borð: 40.000 kr.
Það er því um að gera að sameina vinahópinn og tryggja sér 8 manna borð á góðu verði!
🎟️ Happdrætti verður á staðnum og við erum með fullt af veglegum vinningum sem hægt verður að næla sér í.
Hvort sem þú ætlar með vinahópnum, Víkingunum, fjölskyldunni eða bara að koma og njóta kvöldsins – þá máttu ekki missa af þessu! ❤️🖤🍻
Aldurstakmark: 20 ár.
Miðasala fer fram á Abler!
🍺 Oans, zwoa, drei – PROST! 🍻

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Gunnar Vatnhamar til Vejle

Forsíðufrétt

Yin Yoga með Ylfu hefst á morgun!

Forsíðufrétt, Handbolti

Stuðningsmannakvöld Víkings fer fram 1. september

Forsíðufrétt, Handbolti

Yfirlýsing handknattleiksdeildar Víkings

Forsíðufrétt, Handbolti

Gísli Steinar Jónsson gerir tveggja ára samning við Víking

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Bergþóra Sól framlengir