Virkir Víkingar – Heilsuefling 60+ í Virkinu í vetur!

Heilsueflingarnámskeið fyrir 60 ára og eldri hjá Víkingi hefst í september!
Langar þig að hreyfa þig, styrkja líkamann og eiga góða stund í skemmtilegum félagsskap?
Víkingur býður upp á 10 vikna heilsueflingarnámskeið fyrir 60 ára og eldri í Virkinu í Safamýri. Markmiðið er að skapa jákvætt og styðjandi umhverfi þar sem allir geta hreyft sig eftir eigin getu og unnið að bættri heilsu, aukinni vellíðan og góðri samveru.
Æfingar fara fram tvisvar í viku, á mánudögum og fimmtudögum kl. 10:30–11:30 í Virkinu í Safamýri. Námskeiðið stendur yfir í 10 vikur og hefst mánudaginn 14. september. Verð fyrir námskeiðið er 18.900 kr.
Æfingarnar verða sniðnar að mismunandi getu þátttakenda, með áherslu á örugga, faglega og skemmtilega hreyfingu.
Þjálfarar námskeiðsins:
Bjarney Gunnarsdóttir er íþróttafræðingur með víðtæka reynslu af þjálfun og kennslu. Hún er að ljúka meistaragráðu í íþrótta- og heilsufræði og hefur einnig lokið diplómu í hagnýtri heilsueflingu.
Jón Sigurður Gunnarsson eða Nonni er menntaður sviðslistamaður og afreksíþróttamaður með áratuga reynslu af fimleikum og fjölbreyttri líkamsþjálfun. Hann leggur áherslu á alhliða styrktaræfingar, liðleika og góða tækni og hefur sérstakan áhuga á að gera hreyfingu aðgengilega, skemmtilega og gefandi fyrir fólk á öllum aldri og getustigum. Nonni er jafnframt nýkrýndur Evrópumeistari í bekkpressu!
Skráning á heilsueflingarnámskeiðið fer fram á Abler.
Við hvetjum alla áhugasama að mæta og prófa en öllum er velkomið að mæta á prufuæfingu!
Það er hægt að bætast við hópinn hvenær sem er!
Kynningarfundur verður í veislusalnum í Virkinu fimmtudaginn 10. september kl. 17:00.
Endilega kíktu við, kynntu þér námskeiðið og hittu þjálfarana!
Mælum með að gerast meðlimur í fésbókarhópnum Virkir Víkingar!
Við hlökkum til að hreyfa okkur saman í vetur!❤️🖤

Aðrar greinar

Forsíðufrétt

Októberfest Víkings haldið 19. september

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Gunnar Vatnhamar til Vejle

Forsíðufrétt

Yin Yoga með Ylfu hefst á morgun!

Forsíðufrétt, Handbolti

Stuðningsmannakvöld Víkings fer fram 1. september

Forsíðufrétt, Handbolti

Yfirlýsing handknattleiksdeildar Víkings

Forsíðufrétt, Handbolti

Gísli Steinar Jónsson gerir tveggja ára samning við Víking