
Fimmtudaginn 12. mars munu þau Einar Örn Guðmundsson og Margrét Lára Viðarsdóttir vera með fyrirlestur frá Sjálfsaga. Fyrirlesturinn fer fram í veislusalnum í Virkinu kl 18:30 og er opinn fyrir 3. – 5. flokk í handbolta. Foreldrar eru velkomnir!
Sjálfsagi er fyrirtæki sem stofnað var af þeim hjónum Margréti og Einari en markmið fyrirtækisins hefur verið að vera leiðandi í forvörnum þegar kemur að andlegri- og líkamlegri heilsu. Þau hafa ferðast víða um landið og haldið fyrirlestra fyrir fyrirtæki, stofnanir, skóla og íþróttafélög.
Við vonumst til þess að sjá ykkur sem flest á fimmtudaginn!❤️🖤