Glæsilegur árangur U-16 ára landslið karla
17. maí 2022 | KnattspyrnaStígur Diljan og Sölvi gerðu sér lítið fyrir og unnu UEFA Development Tournament ásamt liðsfélögunum sínum í U-16 ára landsliðinu þar sem að þeir mættu Svíþjóð, Sviss og Írlandi.
Stígur spilaði mest miðsvæðis eða út á væng á mótinu og skapaði fullt af færum fyrir sig sem og liðsfélaga sína og náði að skora gegn Sviss. Einnig bar hann fyrirliðabandið reglulega á mótinu. Sölvi sem var að spila sínu fyrstu landsleiki stóð vaktina í miðri vörninni og getur verið afar stoltur af sínu fyrsta verkefni. Hann þótti öruggur í sínum aðgerðum og var yfirvegaður á boltanum eins og honum einum er lagið.
Það er augljóst að þessir miklu Víkingar eiga framtíðina fyrir sér og munum við njóta þess að fylgjast með þeim!