Boozt og Víkingur

Víkingur býður Boozt hjartanlega velkomið í hamingjuna! Um leið og við frumsýnum nýja Macron treyju hannaða af Halldóri Smára kynnum við nýjan aðal samstarfsaðila félagsins, Boozt.

Samningurinn er til fjögurra ára og er sá stærsti í sögu félagsins og með samningnum er staða Víkings staðfest sem verðmætur samstarfsaðili alþjóðlegs vörumerkis. Saman verðum við sterkari bæði innanlands og í komandi ævintýrum á meginlandi Evrópu.

Boozt verður framan á búningi félagsins ásamt því að vera sýnilegt á heimavelli Hamingjunnar sem og á samfélagsmiðlum. Í sumar og út samningstímann munum við kynna ný og spennandi verkefni og áherslur með Boozt sem munu hjálpa báðum samningsaðilum að ná markmiðum sínum: Að vera í forystu á sínu sviði, að vinna og skapa minningar saman! Áfram Víkingur ❤️🖤

 

Víkingur er félag með sterka metnað og glæsilegan grunn. Fyrir mig hefur samstarfið einnig persónulega tengingu. Ég fæddist og ólst upp á Íslandi. Hjá Boozt höfum við alltaf átt náið samband við Ísland. Við sjáum mikla möguleika í þeirri miklu þróun sem Víkingur er að ganga í gegnum. Að styðja félag með metnað til að keppa á hæsta stigi og þróa jafnframt ungt hæfileikafólk er eitthvað sem við erum stolt af að vera hluti af.

Hermann Haraldsson, forstjóri og meðstofnandi Boozt

 

Ég spilaði í mörg ár í ensku úrvalsdeildinni og í alþjóðlegum fótbolta, þar sem kröfur um skipulag og metnað félaganna eru gríðarlega miklar. Ef þú vilt keppa á því stigi þarftu sterka uppbyggingu og sterka samstarfsaðila.

Víkingur hefur þegar stigið stór skref sem félag, en metnaðurinn stoppar ekki þar. Við munum halda áfram að þróa og hækka ránna. Þegar norrænt fyrirtæki af stærð Boozt velur að gerast aðal styrktaraðili sendir það mjög skýr skilaboð.

Það sýnir að félagið er farsælt og hefur metnað til að ná lengra á öllum stigum. Þetta er samstarf sem mun hjálpa til við að lyfta félaginu enn hærra á alþjóðlegan mælikvarða.

Gylfi Sigurðsson, leikmaður Víkings og íslenska landsliðsins

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Jóhanna Elín framlengir!

Forsíðufrétt, Handbolti

Víkingur deildarmeistari Grill-66 deildarinnar!

Víkingur TV, Knattspyrna, Forsíðufrétt

Víkingur – Grótta æfingaleikur í beinni á VíkingurTV

Forsíðufrétt

Víkingur gerir samning við Rekstrarvörur

Forsíðufrétt, Handbolti

Fyrirlestur frá Sjálfsaga 12. mars fyrir iðkendur í handbolta

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Breiðablik – Víkingur í beinni útsendingu