Víkingur slítur viðræðum við Norrköping

Stjórn knattspyrnudeildar Víkings hefur hafnað tilboði sænska úrvalsdeildarliðsins Norrköping í Arnar Gunnlaugsson þjálfara meistaraflokks karla. Jafnframt hefur félagið slitið viðræðum við sænska félagið. Eftir viðræður síðustu daga kom í ljós að töluvert bar á milli félaganna. Arnar Gunnlaugsson hefur skilað félaginu frábæru starfi undanfarin ár og framundan er spennandi og mikilvægt tímabil fyrir okkur Víkinga.

Víkingur.is óskaði eftir viðbrögðum frá Kára Árnasyni, yfirmanni knattspyrnumála hjá Víking

„Tilboð Norrköping var ekki nálægt því sem við teljum virði Arnars Gunnlaugssonar vera. Því ákvað félagið að afþakka frekari samningaviðræður og setja allan fókus á undirbúning fyrir næsta tímabil. Arnar er afar fær þjálfari og mikilvægur okkur Víkingum og er ég afar spenntur fyrir áframhaldandi samstarfi með Arnari.“

Gleðileg jól kæru Víkingar og takk fyrir ómetanlegan stuðning á árinu.

Aðrar greinar

Forsíðufrétt, Handbolti

Víkingur deildarmeistari Grill-66 deildarinnar!

Víkingur TV, Knattspyrna, Forsíðufrétt

Víkingur – Grótta æfingaleikur í beinni á VíkingurTV

Forsíðufrétt

Víkingur gerir samning við Rekstrarvörur

Forsíðufrétt, Handbolti

Fyrirlestur frá Sjálfsaga 12. mars fyrir iðkendur í handbolta

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Breiðablik – Víkingur í beinni útsendingu

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Grace McClellan til Víkings