Í Safamýrinni og Víkinni er líf og fjör frá morgni til kvölds, virka daga sem helga. Fólk á öllum aldri hreyfir sig í heilsubótarskyni, æfir stíft keppnisíþróttir og allt þar á milli.
Í Safamýrinni er að finna sal til innanhúsíþrótta af ýmsu tagi, en einnig má finna karatesal. Utandyra má finna vallarsvæði með glæsilegum gervigrasvelli með stúku sér við hlið og grasvöll. Auk þess er glæsilegur hátíðarsalur sem hentar vel fyrir fundi eða aðrar samkomur og mannfagnaði.
Í Víkinni er aðalvöllur knattspyrnudeildar með glæsilegri stúku sér við hlið auk vallarsvæðis, gervigrasvöllur og grasvöllur til æfinga og tennisvellir. Einnig er að finna sal til innanhússíþrótta af ýmsu tagi. Svo má ekki gleyma hátíðarsalnum þar sem margur maðurinn hefur fagnað merkum áfanga í lífi sínu eða annarra, til dæmis stórafmæli eða fermingu. Víkingur leigir sömuleiðis út sali fyrir fundi eða aðrar samkomur og mannfagnaði.
Í Safamýrinni og Víkinni er boðið upp á fótbolta og handbolta fyrir alla yngri flokka. Hins vegar er karatedeildin til húsa í Safamýrinni, og almennings-, hjólreiða- og tennisdeildin eru til húsa í Víkinni. Borðtennisdeildin, skíðadeildin og tennisdeildin eru ýmist í TBR, Bláfjöllum eða í Tennishöllinni í Kópavogi.
Hægt er að hafa samband við skrifstofu Víkings í sima 519-7600 eð senda tölvupóst á [email protected].