TENNISSKÓLI FYRIR 8-16 ÁRA | Tennis

Skráning hefst föstudaginn 21. maí í gegnum Sportabler

TENNISSKÓLI FYRIR 8-16 ÁRA 
Tennisklúbbur Víkings verða með tennisnámskeið bæði fyrir byrjendur og ungt afreksfólk.

Tennisnámskeiðin fara fram á nýju tennisvöllum Tennisklúbbur Víkings, Traðarland 1, 108 Reykjavík í Fossvogsdal. Byrjendur kynnast grunnatriðum tennisíþróttarinnar í formi léttra æfinga og leikja.

Krakkar sem ljúka tveggja vikna námskeiði læra „Míni Tennis“ sem er grunnstigsleikur fyrir byrjendur. Einnig helstu reglur í tennis og hvernig á að telja í tennisleik.

Námskeiðið er haldið virka daga kl. 9–12 og/eða kl. 13–16. Krakkarnir verða að koma með nesti í skólann og það er einn kaffitími fyrir og eftir hádegi. Muna að klæða börnin eftir veðri.

Námskeiðsgjald er 19.500 kr. og innifalið er Wilson tennisspaði, tennis bolur og 3 boltar.

Veittur er 10% systkinaafsláttur og 20% afsláttur ef sótt er um fleiri en eitt námskeið. Mögulegt er að skrá þátttakendur viku í senn. Þá kostar vikan 14.800 kr. Stakur dagur kostar 3.500 kr. (spaði, bol og boltar ekki innifalin).

AFREKSPRÓGRAMM
Fyrir þá sem eru nú þegar með ágætan grunn í tennis og vilja ná miklum framförum á stuttum tíma, sérstaklega með tilliti til árangur í mótum. Lögð er áhersla á íþróttamannslega hugsun og viðhorf, fótavinnu, tækni, herkænsku og þrek. Á sumrin er hægt að ná góðum framförum og því mælum við með að sem flestir æfi með okkur eins mikið og þeir geta í sumar.

Æfingar er 3 kl. á dag, kl.9-12 og/eða kl.13-16, alla virka daga.

Vikan kostar 14.800 kr. hálfur dagur í viku og 22.500 kr. í tvær vikur. Wilson bolur og taska innifalið með tveggja vikna námskeið.

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Lokahóf knattspyrnudeildar árið 2025

Lesa nánar
Forsíðufrétt

Æfingar falla niður vegna veðurs og mannvirkjum Víkings lokað

Lesa nánar
Forsíðufrétt, Félagið

Orri Hjaltalín ráðinn vallarstjóri hjá Víkingi

Lesa nánar
Knattspyrna, Forsíðufrétt

Pablo Punyed kveður Hamingjuna

Lesa nánar
Forsíðufrétt, Handbolti, Uncategorized

Víkingar í vali í yngri landsliðum karla í handbolta

Lesa nánar
Knattspyrna, Forsíðufrétt

Matti Villa í nýtt hlutverk hjá Víkingum

Lesa nánar