Sumarnámskeið 2024

Sumarnámskeið Víkings 2024

Kæru Víkingar,

Við kynnum til leiks Sumarnámskeið Víkings sumarið 2024 fyrir börn fædd 2017-2014.

Sumarnámskeiðin í sumar verða með með breyttu sniði en lagt er upp með að bjóða uppá fjölbreytt og skemmtilegt íþróttanámskeið sem snertir á nokkrum íþróttagreinum sem Víkingur hefur uppá að bjóða.

Um er að ræða vikunámskeið milli 9:00-16:00 með heitum heimilismat í hádeginu.

Boðið verður uppá námskeið í Víkinni og Safamýri og eru að hámarki 60 pláss á hvorum stað, Víkingur áskilur sér rétt til þess að sameina námskeið ef að lágmarksskráning næst ekki.

Grófa dagskrá og verðhugmynd má sjá í viðhenginu en nánari dagskrá ásamt endanlegum upplýsingum um verð verður auglýst á heimasíðu Víkings áður en skráning hefst.

Skráning mun hefjast mánudaginn 22. Apríl klukkan 12:00 í gegnum Abler síðu Víkings.

Frekari upplýsingar veita Ívar Orri, Íþróttastjóri, og Valgerður Marija, Íþróttafulltrúi, hægt er að senda þeim tölvupóst á netfangið [email protected] og [email protected].

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Þakkir til fráfarandi þjálfara

Lesa nánar
Karate, Forsíðufrétt

Karate 101! Nýtt námskeið hjá Karatedeild Víkings!

Lesa nánar
Knattspyrna, Forsíðufrétt

Lokahóf knattspyrnudeildar árið 2025

Lesa nánar
Forsíðufrétt

Æfingar falla niður vegna veðurs og mannvirkjum Víkings lokað

Lesa nánar
Forsíðufrétt, Félagið

Orri Hjaltalín ráðinn vallarstjóri hjá Víkingi

Lesa nánar
Knattspyrna, Forsíðufrétt

Pablo Punyed kveður Hamingjuna

Lesa nánar