Stígur Diljan Þórðarson er kominn heim í Víkina

Knattspyrnudeild Víkings og ítalska liðið Triestina hafa komist að samkomulagi um kaup Víkings á Stíg Diljan Þórðarsyni (2006). Stígur á 4 leiki fyrir meistaraflokk Víkings og hans fyrsti leikur var gegn Keflavík árið 2022 þegar hann kom inn á fyrir Viktor Örlyg Andrason í 4-1 sigri gegn Keflavík í Bestu deildinni. Stígur var keyptur til Benfica í Portúgal árið 2022, þá aðeins 16 ára gamall og sumarið 2024 færði hann sig til Triestina á Ítalíu.

Stígur á 19 leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands og hefur skorað í þeim 5 mörk. Árið 2024 var hann valinn í U-19 landslið Íslands og spilaði þar 6 leiki og skoraði í þeim 1 mark.

Gefum Kára Árnasyni, yfirmanni knattspyrnumála hjá Víking orðið:

Stígur er hávaxinn, stór og mikill. Gríðarlega kröftugur strákur sem er fastur fyrir. Ef ég má sletta aðeins þá væri orðið „powerhouse“ það sem mér finnst lýsa honum best. Stígur er að taka rétta skrefið á sínum knattspyrnuferli og við væntum mikils af honum hér í Víkinni á næstu árum.

Knattspyrnudeild Víkings býður Stíg Diljan hjartanlega velkominn aftur í Hamingjuna! ❤️🖤

Ps. hér má sjá mynd frá því þegar Stígur varð Orkumótsmeistari. Þökkum Aron Baldvin Þórðarsyni fyrir þessa sendingu!

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Aðalfundur Knattspyrnudeildar Víkings haldinn

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Jóhannes Kristinn Bjarnason í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Aðalfundur Knattspyrnudeildar Víkings haldinn í dag

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Aðalfundur Knattspyrnudeildar Víkings 2. mars nk.

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Jasmín Erla í Víking

Forsíðufrétt, Handbolti

Eva Hrund ráðin þjálfari meistaraflokks kvenna í handbolta