Víkings podcastið – Stelpurnar okkar

Podcast þátturinn Stelpurnar okkar verður á dagskrá þetta árið á Víkings podcastinu. Umsjón hafa Hörður Ágústsson og Hrafnhildur Lilja Harðardóttir.

Hörður æfði í yngri flokkum Víkings og er hans helsta „claim to fame“ að þekkja Einar Guðnason og hafa spilað með Halldóri Smára einn KSÍ leik. Hægt er að sjá staðfestingu þess efnis hér á vef KSÍ. Hrafnhildur Lilja er iðkandi á yngra ári í 4.flokki Víkings og er hún hugmyndasmiðurinn að báðum þáttunum, Stelpurnar okkar og Fyrirmyndirnar okkar, sem má einmitt hlusta á hér að neðan.

Í fyrsta þætti af Stelpunum okkar fengum við Unnbjörgu og Kötlu leikmenn meistaraflokks Víkings og farið var yfir víðan völl. Rætt var um HK/Víking, breytinguna árið 2019, hvernig er að vinna með John og hver staðan er á hópnum og hverju aðdáendur Víkings mega búast við í sumar. Skemmtilegt spjall fyrir okkur öll sem höfum áhuga á fótbolta.

Stelpurnar okkar – þáttur 1 – Unnbjörg og Katla

Fyrirmyndirnar okkar – þáttur 1 – Sif Atladóttir

Víkings podcastið er aðgengilegt á :

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Miðasala á Bröndby – Víkingur

Lesa nánar
Knattspyrna, Forsíðufrétt

Ashley Clark til Víkings

Lesa nánar
Knattspyrna, Forsíðufrétt

Nikolaj Hansen framlengir út 2027

Lesa nánar
Knattspyrna, Forsíðufrétt

Miðasala á Víkingur – Bröndby

Lesa nánar
Knattspyrna, Forsíðufrétt

Jón Páll Pálmason ráðinn aðstoðarþjálfari

Lesa nánar
Forsíðufrétt, Handbolti

Daníel Ísak ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla

Lesa nánar