Óskar Borgþórsson til Víkings

Knattspyrnudeild Víkings og norska knattspyrnufélagið Sogndal hafa náð samkomulagi um kaup Víkings á Óskari Borgþórssyni sem skrifað hefur undir samning við félagið út leiktíðina 2028. Óskar fór til Sogndal árið 2023 frá Fylki þar sem hann kom upp úr unglingastarfi félagsins. Óskar hefur leikið 9 leiki fyrir U-21 árs landslið Íslands og skorað í þeim 1 mark.

Gefum Kára Árnasyni yfirmanni knattspyrnumála orðið

Óskar er leikinn kantmaður með mikinn kraft og áræðni. Hann er leikinn, með frábæran skotfót og getur leyst fleiri stöður á vellinum. Óskar er gríðarlega spennandi leikmaður og við búumst við miklu af honum. Við teljum hann smellpassa í hópinn okkar og eins og sjá má á myndunum frá undirritun samningsins fylgir honum mikil gleði og hann er eitt stórt bros þessi gæi. Ég er hrikalega ánægður að fá hann í hópinn og hlakka til að sjá hann í þeim rauða og svarta. Takk.

Knattspyrnudeild Víkings býður Óskar hjartanlega velkominn í Hamingjuna! ❤️🖤

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Aðalfundur Knattspyrnudeildar Víkings haldinn

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Jóhannes Kristinn Bjarnason í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Aðalfundur Knattspyrnudeildar Víkings haldinn í dag

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Aðalfundur Knattspyrnudeildar Víkings 2. mars nk.

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Jasmín Erla í Víking

Forsíðufrétt, Handbolti

Eva Hrund ráðin þjálfari meistaraflokks kvenna í handbolta