Matti Villa í nýtt hlutverk hjá Víkingum

Kæru Víkingar. Knattspyrnudeild Víkings tilkynnir með stolti að Matthías Vilhjálmsson er kominn í nýtt hlutverk hjá félaginu en hann mun þjálfa 2. og 3. flokk karla ásamt því að sinna afreksþjálfun og halda utan um þróun efnilegra leikmanna.

Með því að fá Matta í þjálfarahópinn fær félagið að njóta góðs af ómetanlegri reynslu og þekkingu hans ásamt því að iðkendur, undir hans leiðsögn, munu læra um vinnusemi, aga, auðmýkt, það að gefast aldrei upp og hvað það er að vera sigurvegari.

Eins og kunnugt er mun Matthías leggja skóna á hilluna um helgina en framtíðin er heldur betur björt, framtíðin er Hamingja. ❤️🖤

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Aðalfundur Knattspyrnudeildar Víkings haldinn

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Jóhannes Kristinn Bjarnason í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Aðalfundur Knattspyrnudeildar Víkings haldinn í dag

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Aðalfundur Knattspyrnudeildar Víkings 2. mars nk.

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Jasmín Erla í Víking

Forsíðufrétt, Handbolti

Eva Hrund ráðin þjálfari meistaraflokks kvenna í handbolta