Ný Keppnistreyja Víkings 2026 – Forsala
Treyjan verður opinberuð innan skamms og þetta er því einstakt tækifæri fyrir þau sem vilja vera skrefi á undan. Treyjan kemur í mjög takmörkuðu upplagi, og nú bæði í stutterma og síðerma útgáfu. Ekki láta þessa framhjá þér fara!
Ég er ekki hlutlaus en að mínu mati er þetta best heppnaða Víkingstreyja sem ég hef tekið þátt í að hanna. Ég er ótrúlega ánægður með hana - í raun svo ánægður að mig langar að hringja í Sölva og segja honum að ég sé ekki hættur.
„Við höfum alltaf gert þetta svona“ er ein hættulegasta setning sem manneskjan getur látið út úr sér. Þess vegna hafa seinustu tvær treyjur verið öðruvísi en Víkingar áttu að þekkja og snerist það einfaldlega um að brjóta okkur frá því hefðbundna og sýna að Víkingstreyjan þarf ekki alltaf að vera eins.
Núna er kominn tími til að taka treyjuna aðeins til baka og færa útlit hennar að einhverju leyti nær grunninum en þó með nýjum og ferskum hætti.
Það er von mín að þetta sé Víkingstreyja sem bæði leikmenn og stuðningsfólk muni klæðast með stolti og veiti þeim innblástur til góðra verka bæði á vellinum og í stúkunni.

Áfram Víkingur,
Halldór Smári Sigurðsson
Tryggðu þér eintak í forsölu
16.990 kr. 18.990 kr.Price range: 16.990 kr. through 18.990 kr.