Ingvar Jónsson fær Gullhanskann
25. október 2023 | KnattspyrnaIngvar Jónsson hefur verið útnefndur besti markmaður Bestu deildarinnar og fær Nike Gullhanskann eftir frábært tímabil sem hjálpaði liðinu að landa Bestu deildar skyldinum.
Ingvar byrjaði tímabilið af krafti og hélt hreinu fyrstu fjóra leiki sumarsins, en hann náði samtals 10 hreinum lökum í sumar og fékk aðeins á sig 25 mörk í 25 leikjum í Bestu deildinni.
Þrátt fyrir að Ingvar hafi verðskuldað Gullhanskann í lok tímabilsins, þá mun hann vera sá fyrsti til að viðurkenna að það er krefst alvöru liðsheildar allra leikmanna, ekki síst varnarmanna til að ná þessum merkilegum áfanga.
Við óskum Ingvari innilega til hamingju með Gullhanskann 2023