Haukur Hinriksson

Haukur Hinriksson nýr framkvæmdarstjóri Víkings

Haukur Hinriksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Knattspyrnufélagsins Víkings. Haukur sem er 34 ára hefur starfað sem yfirlögfræðingur KSÍ undanfarin 9 ár. Haukur tekur við stöðunni af Haraldi Haraldssyni sem hefur verið framkvæmdastjóri félagsins undanfarin 14 ár.
Haukur hefur sem yfirlögfræðingur KSÍ starfað við góðan orðstír að mörgum mikilvægum verkefnum sem snúa m.a. að leyfismálum, aga- og kærumálum, lögum og reglugerðum, leikmannasamningum og umboðsmönnum leikmanna, svo eitthvað sé nefnt.
Haukur útskrifaðist með BA gráðu og Meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík en hann stundaði einnig nám við Université de Cergy Pontoise í París. Hann lauk einnig LL.M. námi í alþjóðlegri samninga- og gerðardómsrétti frá University of Fribourg, Sviss. Hann stundar nú nám í viðskiptafræði MM í stjórnun við Háskólann á Akureyri.
,,Við erum gríðarlega ánægð með þessa ráðningu og bjóðum Hauk hjartanlega velkominn til Víkings. Haukur var valinn úr hópi margra mjög hæfra einstaklinga sem sóttu um stöðuna í mjög faglegu ferli sem félagið fór í við val á framkvæmdarstjóra. Haukur þekkir vel til íþróttalífs hér á landi eftir farsælt starf hjá KSÍ auk þess sem mikil reynsla hans af þeim vettvangi mun nýtast félaginu afar vel í sínum næstu skrefum og framtíðarsýn.  Knattspyrnufélagið Víkingur hugsar hátt og hefur metnaðarfull markmið. Það er mjög spennandi vegferð og tímar framundan hjá félaginu okkar.“
Björn Einarsson
Formaður Aðalstjórnar
Knattspyrnufélagið Víkingur

Aðrar greinar

Forsíðufrétt, Félagið, Handbolti

Hafdís og Jóhann Reynir leikmenn tímabilsins í handboltanum

Lesa nánar
Knattspyrna, Forsíðufrétt

Viktor Örlygur framlengir

Lesa nánar
Knattspyrna, Forsíðufrétt

Lárustofa opnuð formlega

Lesa nánar
Knattspyrna, Forsíðufrétt

Júlía Ruth til Víkings

Lesa nánar
Forsíðufrétt, Handbolti

Aðalfundur Handknattleiksdeildar Víkings og BUR Hnd.

Lesa nánar
Knattspyrna, Forsíðufrétt

Fyrsta æfingin hjá Ali Al-Mosawe (ALMO)

Lesa nánar