Gylfi Þór Sigurðsson í Víking

Víkingur tilkynnir með mikilli hamingju að félagið hefur samið við Gylfa Þór Sigurðsson, sem kemur til félagsins frá Val. Gylfa Þór þarf ekki að kynna fyrir neinum, en hann er landsliðsmaður í knattspyrnu og einn allra besti knattspyrnumaður sem Ísland hefur alið af sér. 

Gylfi, sem er uppalinn FH-ingur, fór 15 ára gamall til Englands og samdi við Reading. Gylfi lék með félaginu og öðrum á láni áður en hann fór til Hoffenheim í Þýskalandi og síðan til Swansea þar sem hann sló í gegn. Gylfi var lykilmaður hjá Tottenham Hotspur og Everton í Englandi, Lyngby í Danmörku og nú síðast með Val í Bestu deild karla. 

Gylfi hefur spilað á þremur stórmótum með Íslandi. Fyrst með U21 landsliði Íslands á EM árið 2011 og með A landsliði karla á EM 2016 og HM 2018. Þá er hann markahæsti landsliðsmaður karla frá upphafi.

Gylfi kemur til Víkings á frábærum tíma, en liðið er nú í miðju einvígi gegn Panathinaikos í umspili um sæti í 16 liða úrslitum Sambandsdeildar Evrópu. Framundan er spennandi tímabil í Bestu deild karla og er mikil tilhlökkun að fá að sjá Gylfa í svörtu og rauðu treyjunni. 

Knattspyrnudeild Víkings vill þakka Knattspyrnudeild Vals fyrir heiðarleg og góð samskipti í kringum kaupin á Gylfa. Við bjóðum Gylfa Þór Sigurðsson hjartanlega velkominn í Hamingjuna og hlökkum til þess að fylgjast með honum á vellinum í sumar.

Aðrar greinar

Forsíðufrétt, Félagið, Handbolti

Hafdís og Jóhann Reynir leikmenn tímabilsins í handboltanum

Lesa nánar
Knattspyrna, Forsíðufrétt

Viktor Örlygur framlengir

Lesa nánar
Knattspyrna, Forsíðufrétt

Lárustofa opnuð formlega

Lesa nánar
Knattspyrna, Forsíðufrétt

Júlía Ruth til Víkings

Lesa nánar
Forsíðufrétt, Handbolti

Aðalfundur Handknattleiksdeildar Víkings og BUR Hnd.

Lesa nánar
Knattspyrna, Forsíðufrétt

Fyrsta æfingin hjá Ali Al-Mosawe (ALMO)

Lesa nánar