Eftirfarandi aðilar bæta hluta af fjárhagslegu tjóni:
Íþróttaslysasjóður ÍSÍ endurgreiðir íþróttaiðkendum innan vébanda ÍSÍ, 16 ára og eldri, kostnaðarhluta sjúklings vegna sjúkraþjálfunar og beinnar læknismeðferðar, skv. opinberum taxta Sjúkratrygginga Íslands, sjá reglugerð ÍSÍ um greiðslu bóta vegna íþróttaslysa. Ríkisvaldið leggur árlega til framlag til ÍSÍ vegna íþróttaslysa og takmarkast greiðslugeta ÍSÍ af þeirri upphæð á hverju almanaksári. Sjá hér.
Sjúkratryggingar Íslands bæta þolendum tjón en almennt gildir sú takmörkun að til þess að eiga rétt á bótum úr slysatryggingum þarf slysið að hafa valdið a.m.k. 10 daga óvinnufærni: Sjá hér.
Íþróttafólk á eins og aðrir einnig rétt á því að sækja um afsláttarkort, sem veitir afslátt á sjúkraþjónustu þeirra sem eru með samning við Sjúkratryggingar Íslands, eftir að ákveðnu lágmarki er náð:
– 18 ára og yngri greiða fullt gjald upp að 8.400kr
– Eldri greiða fullt gjald upp að 28.000kr
Einnig bæta Sjúkratryggingar Íslands tjón vegna tannlækninga (skv. gjaldskrá) ef ekki er réttur til endurgreiðslu annars staðar. Sjá hér.
Það er mikilvægt að benda á það að samkvæmt íslenskum lögum bera þau félög og samtök sem standa fyrir félags- og tómstundastarfi ekki sjálfkrafa ábyrgð á slysum sem börn verða fyrir í starfinu.
Börn og ungmenni fá tjón af völdum slyss, t.a.m. tannlæknakostnað, ekki greiddan af öðrum, nema einhver beri skaðabótaábyrgð á slysinu.
Skilyrði skaðabótaábyrgðar eru m.a. að sá sem krafinn er um bætur eigi sök á slysinu.
Ef barn eða ungmenni slasast í óhappi sem engum verður kennt um ber sá sem stendur fyrir félags- og tómstundastarfinu þess vegna ekki ábyrgð á því.
Sá sem stendur fyrir starfinu ber hins vegar skaðabótaábyrgð ef starfsmenn hans, launaðir eða ólaunaðir, hafa sýnt af sér sök, t.a.m. vanrækslu við að gæta barna, og það veldur slysi.
Sá sem stendur fyrir starfinu, eða umráðamaður aðstöðu, getur orðið bótaskyldur ef aðbúnaður er ófullnægjandi og slys verður vegna þess.
Börn og ungmenni geta þurft að bæta öðrum börnum tjón sem þau valda þeim.
Heimilistryggingar fela langoftast í sér ábyrgðartrygginguvegna tjóns sem börn valda og sumar fela líka í sér slysatryggingar vegna tjóns sem börn valda og sumar fela líka í sér slysatryggingu vegna slysa sem börn verða fyrir í frítíma. Þar sem að slíkum slystryggingum sleppir er barn eða ungmenni ekki tryggt í félags- og tómstundastarfinu frekar en þegar það er úti að leik.
Frekari upplýsingar um tryggingamál félagasamtaka má finna í bæklingi sem gefinn var út af menntamálaráðuneytinu haustið 2010:
Ábyrgð aðila sem standa fyrir félags- og tómstundastarfi fyrir börn og unglinga