Handknattleiksdeild Víkings tilkynnir með stolti að Eyrún Ósk Hjartardóttir hefur skrifað undir samning við meistaraflokk kvenna og kemur til félagsins frá Fjölni. Eyrún Ósk er öflugur vinstri hornamaður sem styrkir hópinn verulega með miklum hraða, áræðni og óbilandi baráttuvilja.
Eyrún hefur verið áberandi í liði Fjölnis síðustu ár og sýnt að hún er leikmaður sem leggur allt í verkefnið – bæði sóknarlega og varnarlega. Með komu hennar eykst breidd og gæði liðsins fyrir komandi átök í Grill 66 deildinni og bikarkeppninni.
Sebastian Alexandersson, þjálfari meistaraflokks kvenna, segir: „Eyrún Ósk kemur inn með gríðarlegan kraft og hungur. Hún er hraður og áræðinn hornamaður sem mun nýtast okkur mjög vel í hraðaupphlaupum og í kraftmiklum leikstíl okkar. Ég hlakka til að vinna með henni og tel hana passa vel inn í menningu og markmið liðsins.“
Aðalsteinn Eyjólfsson, yfirmaður handknattleiksmála hjá Víkingi, bætir við: „Við erum mjög ánægð með að fá Eyrúnu til okkar. Hún hefur sýnt að hún er tilbúin að leggja hart að sér og við erum sannfærð um að hún eigi eftir að blómstra í Víking. Þessi liðsstyrking undirstrikar metnað okkar í að byggja upp sterkan og samkeppnishæfan hóp.“
Eyrún Ósk Hjartardóttir sjálf segir: „Það er frábært að ganga til liðs við Víking. Mér líst mjög vel á umhverfið og þann metnað sem ríkir innan félagsins. Ég hlakka mikið til að taka næstu skref í minni þróun sem leikmaður og vonast til að geta lagt mikið af mörkum í verkefnunum fram undan.“
Við bjóðum Eyrúnu hjartanlega velkomna í raðir Víkings og hlökkum til að sjá hana í rauðu og svörtu treyjunni