
Sebastian Popovic Alexandersson, þjálfari meistaraflokks kvenna í handknattleik Víkings, hefur ákveðið að láta af störfum að loknu yfirstandandi tímabili. Hann hefur stýrt liðinu undanfarin tvö ár og mun ljúka tímabilinu með Víkingi þar sem liðið stendur í 3. sæti deildarinnar. Undir stjórn Sebastians hefur liðið tekið miklum framförum og skilar hann því góðu búi til næsta þjálfara. Stjórn handknattleiksdeildar Víkings færir Sebastian innilegar þakkir fyrir afar góð störf og óskar honum velfarnaðar í þeim verkefnum sem framundan eru.
Það er hún Eva Hrund Harðardóttir sem tekur við sem þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Víkingi. Eva á að baki langan og farsælan feril sem leikmaður í meistaraflokki en hún lék sinn fyrsta meistaraflokksleik með Fram haustið 2002 og lauk leikmannaferlinum með HK vorið 2021. Hún hefur jafnframt víðtæka reynslu af þjálfun yngri flokka og hefur starfað sem þjálfari frá árinu 2005. Undanfarin ár hefur hún meðal annars þjálfað 3. flokk kvenna og verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá HK tímabilið 2023–2025. Síðastliðið haust tók hún við 4. flokki kvenna hjá Víkingi og hefur samhliða tekið þátt í þjálfun 3. flokks kvenna. Í 4. flokki kvenna hefur Eva byggt upp öfluga liðsheild og myndað sterkan hóp þar sem metnaður og áræðni eru í fyrirrúmi.
„Ég er spennt fyrir komandi tímum og finn fyrir góðum meðbyr. Það er margt jákvætt að gerast hjá félaginu og ég er viss um að við sem störfum í kringum liðið getum í sameiningu eflt og styrkt handboltakonur og í leiðinni lyft kvennastarfinu upp. Það er augljóst að síðastliðin ár hefur gott starf verið unnið hjá Handknattleiksdeild Víkings. Ég hlakka til að byggja ofan á þann grunn sem hefur verið lagður og lít björtum augum til framtíðar,” hefur Eva að segja.
Stjórn handknattleiksdeildar Víkings fagnar ráðningu Evu þar sem hún er einstaklega metnaðarfull og með skýra sýn. Stjórn bindur vonir við að Eva muni halda áfram þeirri vegferð sem kvennahandboltinn er á með því að lyfta kvennastarfinu enn hærra. Hún mun stíga sín fyrstu skref sem aðalþjálfari meistaraflokks kvenna, það verður spennandi að fylgjast með henni í stærra hlutverki hjá félaginu.