Emma, Kristín Erla og Rakel framlengja til 2027!

Þrír leikmenn meistaraflokks kvenna hafa framlengt samninga sína til ársloka 2027, en það eru þær Emma Steinsen, Kristín Erla Johnson og Rakel Sigurðardóttir. Það er mikið fagnaðarefni að framlengja samninga við þessa sterku leikmenn og halda þannig áfram í þeirri góðu vegferð sem félagið hefur verið á síðastliðin ár.

Emmu þarf vart að kynna fyrir Víkingum en hún hefur verið einn af burðarásum liðsins frá 2021 þegar hún kom til félagsins. Frá þeim tíma hefur hún varla misst úr leik með liðinu og spilað 113 leiki fyrir félagið. Emma hefur átt mikilli velgengni að fagna með Víkingum undanfarin fjögur ár og titlarnir fjölmargir á þeim tíma. Stiklað á stóru má þó segja að Mjólkurbikarmeistaratitillinn 2023 og þriðja sætið í Bestu 2024 standi upp úr, en Lengjudeildarmeistaratitilinn 2023 og Meistarar meistaranna 2024 fylgja þó fast á eftir.

Krístin Erla spilaði í sumar sitt annað tímabil með Víking en í sumar lauk hún háskólanámi við Wake Forest University. Hún spilað með liði skólans og komst með þeim í úrslitaleik NCAA á hennar síðasta tímabili með liðinu. Kristín var einn af lykilleikmönnum Víkings í sumar þegar liðið vann sig uppúr fallsæti og í efri hluta Bestu deildarinnar. Það er því mikið fagnaðarefni að framlengja við Kristínu og tekur hún nú sitt fyrsta heila tímabil með liðinu.

Rakel sem er varnarmaður, kom til Víkings frá Breiðablik í haustið 2023. Hún á að baki 3 leiki með U16 ára landsliði Íslands og 26 meistaraflokks leiki með Augnablik og Víking. Rakel er efnilegur leikmaður sem félagið bindur miklar vonir við til framtíðar.

Aðrar greinar

Víkingur TV, Knattspyrna, Forsíðufrétt

Víkingur TV og undirbúningstímabilið framundan

Lesa nánar
Knattspyrna, Forsíðufrétt

Dagur sjálfboðaliðans 5.desember

Lesa nánar
Knattspyrna, Forsíðufrétt, Handbolti

Námskeið Víkings í Desember

Lesa nánar
Knattspyrna, Forsíðufrétt

Gígja Valgerður kveður Víking

Lesa nánar
Knattspyrna, Forsíðufrétt

Aron Snær Friðriksson í Hamingjuna

Lesa nánar
Knattspyrna, Forsíðufrétt

Rauður og svartur fössari í vefverslun Víkings

Lesa nánar