Elísa Birta Káradóttir gengur til liðs við Víking frá HK

Það gleður Knattspyrnudeild Víkings að tilkynna að Elísa Birta Káradóttir hefur gengið til liðs við félagið.

Elísa Birta sem er 16 ára, fædd 2009, kemur til liðsins frá HK þar sem hún hefur leikið allan sinn feril, spilað 48 meistaraflokksleiki og skorað í þeim 11 mörk. Einnig hefur hún leikið 17 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands og skoraði í þeim 2 mörk. Þrátt fyrir ungan aldur býr þessi leikmaður yfir mikilli reynslu var í lykilhlutverki hjá sínu liði í ár í Lengjudeildinni. Hún er teknískur, kröftugur og hraður kantmaður og erum við spennt að sjá hana bæta sinn leik enn frekar í Hamingjunni.

Einar Guðnason, þjálfari meistaraflokks kvenna hafi þetta að segja um Elísu

„Elísa Birta er spennandi leikmaður sem við höfum verið að fylgjast með síðustu ár. Hún er snöggur og beinskeyttur kantmaður. Við hlökkum til að fylgjast með henni í Víkingstreyjunni og þróa hana sem leikmann, en hún hefur alla burði í að verða frábær leikmaður fyrir liðið“

Velkomin í Hamingjuna Elísa Birta! 🖤❤️

Aðrar greinar

Forsíðufrétt

Íþróttaskóli Víkings vorið 2026!

Lesa nánar
Knattspyrna, Forsíðufrétt

Emma, Kristín Erla og Rakel framlengja til 2027!

Lesa nánar
Víkingur TV, Knattspyrna, Forsíðufrétt

Víkingur TV og undirbúningstímabilið framundan

Lesa nánar
Knattspyrna, Forsíðufrétt

Dagur sjálfboðaliðans 5.desember

Lesa nánar
Knattspyrna, Forsíðufrétt, Handbolti

Námskeið Víkings í Desember

Lesa nánar
Knattspyrna, Forsíðufrétt

Gígja Valgerður kveður Víking

Lesa nánar