Ársmiðar á Heimaleiki Víkings – Pepsi Max & Lengjudeildin 2021

Ársmiði Pepsi Max karla og Lengjudeild kvenna sem veitir aðgang að öllum heimaleikjum meistaraflokks karla í Pepsi Max deildinni og öllum heimaleikjum meistaraflokks kvenna í Lengjudeildinni.

Almennt verð er 22.990 kr. en 19.990 kr. í forsölu

Ársmiði Pepsi Max sem veitir aðgang að öllum heimaleikjum meistaraflokks karla í Pepsi Max deildinni.

Almennt verð er 15.990 kr. en 13.990 kr. í forsölu

Ársmiði Lengjudeild kvenna sem veitir aðgang að öllum heimaleikjum meistaraflokks kvenna í Lengjudeildinni.

Almennt verð er 11.990 kr. en 9.990 í forsölu

Gull ársmiði sem veitir aðgang að öllum heimaleikjum meistaraflokks karla og kvenna í deildarkeppni ásamt einum köldum og Víkingsborgara á hverjum heimaleik meistaraflokks karla í Pepsi Max deildinni.

Almennt verð er 31.990 kr. en 28.990 í forsölu

VIP ársmiði sem veitir aðgang að öllum heimaleikjum meistaraflokks karla í Pepsi Max deildinni og auk þess aðgang í hátíðarsalinn klukkustund fyrir leik og í hálfleik. Fyrir leik er boðið upp á snittur, léttan mat og Víking bjór. Í hálfleik er boðið upp á Víking bjór og kaffi.

Almennt verð er 69.990 kr. en 64.990 kr. í forsölu

U25 ársmiði sem veitir aðgang að öllum heimaleikjum meistaraflokks karla í Pepsi Max deildinni og öllum heimaleikjum meistaraflokks kvenna í Lengjudeildinni fyrir þá sem eru fædd árið 1996 og síðar.

Uppfærsla og sérkjör fyrir félaga í Víkingasveitinni

Félagar í Víkingasveitinni hafa möguleika á að uppfæra sig með einni greiðslu, sem er mismunandi eftir því hvert mánaðarlegt framlag er hverju sinni. Þeir sem greiða mánaðarlega 2.500 eða 3.500 krónur geta uppfært sig í Gull ársmiða fyrir 12.500 kr. Þeir sem vilja uppfæra sig í VIP ársmiða geta gert það með greiðslu upp á 10.000 til 40.000 kr., eftir því hvert mánaðarlegt framlag þeirra er.

Þegar takmarkanir verða á fjölda áhorfenda vegna sóttvarnaraðgerða munu ársmiðahafar ganga fyrir þegar kemur að miðum á einstaka leiki.

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Elías Már Ómarsson í Hamingjuna

Lesa nánar
Forsíðufrétt, Handbolti

Víkingar í vali í yngri landsliðum karla í handbolta

Lesa nánar
Forsíðufrétt

Íþróttaskóli Víkings vorið 2026!

Lesa nánar
Knattspyrna, Forsíðufrétt

Emma, Kristín Erla og Rakel framlengja til 2027!

Lesa nánar
Víkingur TV, Knattspyrna, Forsíðufrétt

Víkingur TV og undirbúningstímabilið framundan

Lesa nánar