Markmið hjólreiðadeildar Víkings er að auka færni iðkenda á hjólinu með bættri líkamsbeitingu, gera iðkendur færa um að ferðast lengra á hjólinu af meira öryggi
og síðast en ekki síst njóta útiverunnar með skemmtilegu fólki.
Hópurinn hittist í Víkinni, Traðarlandi 1, á bakvið húsið.
Ingvar Ómarsson setur saman þjálfunaráætlun fyrir hjólreiðadeild Víkings og samstarf er við Aftureldingu, þannig að þeir sem vilja geta farið á fjallahjólaæfingar í Mosfellsbænum og þau koma til okkar á götuhjólaæfingar.
Yfir sumartímann eru skipulagðar æfingar með þjálfara tvisvar í viku í 1 – 1 ½ klst.
Mánudagar kl 18:00
Miðvikudagar kl 18.00
Laugardagar kl 9.00 Hópurinn hittist án þjálfara kl. 9 og hjólar saman í 2 – 3 klst.
Sunnudagar kl. 10.00 Farið af stað kl 10 og hjólaður hringur með viðkomu á kaffihúsi.
Um mánaðarmótin september október flytjum við okkur inn í hús og hjólum þrisvar í viku. Á mánudögum og miðvikudögum kl 17.30 og laugardögum kl 9. Þegar veður leyfir er svo farið út á sunnudögum og hjólað á kaffihús.