Víkingur Logo

1908 – Félagsmannakerfi Víkings

Vertu hluti af sögunni. Vertu hluti af framtíðinni.

Knattspyrnufélagið Víkingur var stofnað árið 1908 og er í hópi elstu og öflugustu íþróttafélaga landsins. Innan félagsins hafa kynslóðir alist upp í gegnum starf sem byggir á virðingu, fagmennsku og góðum árangri. Nú býðst þér að gerast hluti af þessari sögu.

1908 er nýtt félagsmannakerfi Víkings.

Með því að gerast stoltur félagi stuðlar þú að áframhaldandi uppbyggingu félagsins,
bættri aðstöðu og öflugra starfi og tekur þannig virkan þátt í að gera gott félag enn
betra.

Gerast Víkingur

Félagsgjald í 1908 kerfinu er 1.908 krónur í hvert skipti. Hægt er að greiða að lágmarki tvisvar á ári, en einnig getur þú valið að greiða oftar eða allt að tólf sinnum á ári.

Þannig getur hver og einn valið þá leið sem hentar best og verið hluti af uppbyggingarstarfi Víkings.

Ég vill gerast Víkingur og greiða 1908 kr.

Frá: 1.908 kr. every 6 mánaða fresti

Clear
Fjöldi

Öflugt starf fyrir alla aldurshópa

Víkingur þjónar iðkendum á öllum aldri.
Yngsti hópurinn sem er 3-6 ára fer í gegnum íþróttaskóla barnanna, þaðan liggur leiðin í gegnum íþróttastarf á vegum deilda félagsins sem eru átta talsins og loks er boðið upp á leikfimi fyrir eldri borgara

Í öllu starfi Víkings er lögð áhersla á:

  • Fagmennsku
  • Gæði þjálfunar
  • Uppbyggingu einstaklinga
  • Metnað og árangur

Markmið félagsins er að vera ávallt í fremstu röð bæði í uppeldis og afreksstarfi.
Meistaraflokkar og afreksiðkendur byggja á sterku grasrótarstarfi, og grasrótin sækir
innblástur í árangur þeirra sem ná langt.