Eldra ár A lið

4. flokkur karla á CostaBlancaCup á Spáni 

4. flokkur karla tók þátt í sterku alþjóðlegu móti á CostaBlancaCup á Spáni í byrjun júlí.
Þeir fóru út með fjögur lið, tvö eldra árs lið og tvö yngra árs lið og var þetta gríðarlega góð reynsla þar sem að öll lið spiluðu við sterka andstæðinga. Gaman er að segja frá því að eldra árs A liðið gerði sér lítið fyrir og endaði sem sigurvegari í riðlinum sem skilaði þeim beint í 8-liða úrslit en luku þeir keppni þar og höfnuðu þeir því í 5. – 8. sæti á mótinu.
Yngra árs A liðið komst alla leið í úrslitaleik í sínum styrkleika og hafnaði í 2. sæti.
Frábært mót þar sem að allir skemmtu sér vel innan og utan vallar.

Aðrar greinar

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Aðalfundur Knattspyrnudeildar Víkings haldinn

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Jóhannes Kristinn Bjarnason í Hamingjuna

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Aðalfundur Knattspyrnudeildar Víkings haldinn í dag

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Aðalfundur Knattspyrnudeildar Víkings 2. mars nk.

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Jasmín Erla í Víking

Forsíðufrétt, Handbolti

Eva Hrund ráðin þjálfari meistaraflokks kvenna í handbolta