Skemmtidagur yngri flokka

Skemmtidagur yngri flokka með Meistaraflokki kvenna

Sunnudaginn 1. Maí næstkomandi ætlar meistaraflokkur kvenna að bjóða yngri flokkum félagsins að taka þátt á æfingu þeirra. Það verður sett upp skemmtilegar stöðvar og góð tónlist undir.

Eftir æfingu verður boðið uppá grillaðar puslur og drykki með þar sem ungum iðkendum gefst tækifæri á að fá mynd með uppáhalds leikmanni og spjalla við leikmenn.

Dagskrá –

11:00 Æfing hefst hjá meistaraflokki kvenna
11:30 Opin æfing hefst, þar sem krökkunum gefst kostur á að taka þátt á æfingunni
12:10 Grill og spjall við leikmenn

Öllum foreldrum er auðvitað líka boðið að koma og fylgjast með æfingunni og jafnvel taka þátt.

Hlökkum til að sjá sem flesta!

Aðrar greinar

Forsíðufrétt, Handbolti

Víkingur 2 er deildarmeistari í 2. deild karla!

Forsíðufrétt, Borðtennis

Lið karla og kvenna í 1. deild Víkings Íslandsmeistarar

Forsíðufrétt

Skráning hefur opnað í heilsueflingu 60 ára og eldri

Forsíðufrétt

Knattspyrnufélagið Víkingur fagnar 118 árum í dag!

Forsíðufrétt, Borðtennis

Víkingar í úrslitum í 1. deild karla og kvenna í borðtennis

Forsíðufrétt, Handbolti

Gunnar Hrafn Pálsson gengur til liðs við Víking