Víkingur

Knattspyrna · 22. okt 2026

Góðgerðartreyja Víkings til styrktar Ingvari Jónssyni

Góðgerðartreyja Víkings fer í sölu kl. 23 í kvöld, fimmtudaginn 22. október. Treyjan er hönnuð af 66°Norður og framleidd af Macron, og allur ágóði af sölunni rennur til Ingvars Jónssonar, markvarðar Víkings, og fjölskyldu hans.

Gott að vita

  • Salan hefst kl. 23 í kvöld og takmarkað magn er í boði.
  • Treyjan kostar 19.900 kr. og fæst í stærðum XXS–4XL.
  • Stuttbuxur og sokkar verða einnig til sölu.
  • Ekki er hægt að kaupa merkingu á vefnum. Treyjan er afhent án nafns og númers á bakhlið.
  • Treyjan er eingöngu send með Póstinum, heim að dyrum eða í póstbox nálægt þér. Ekki verður hægt að sækja pöntunina í Víkina.

Treyjan er afrakstur samstarfs Víkings og 66°Norður sem hófst í byrjun árs, og í henni leika Víkingar síðasta leik tímabilsins. Ingvar greindist með krabbamein fyrr á árinu og heyr nú baráttu við það.

„Ég þekki Ingvar vel eftir árin okkar saman í Víkingi og að geta notað verkefnið til að hjálpa honum og fjölskyldu hans í þessari baráttu sem er fram undan er það mikilvægasta í þessu öllu,“ segir Halldór Smári Sigurðsson, leikjahæsti leikmaður Víkings frá upphafi og meðhönnuður treyjunnar.

Sagan á bak við treyjuna

Treyjan segir sögu fyrsta Íslandsmeistaraliðs Víkings og fyrstu keppnisferðar félagsins, árið 1921, í undirbúningi fyrir Íslandsmótið það ár. Liðið sigldi til Vestfjarða og lék þar æfingaleiki við Ísfirðinga. Um sama leyti og á sömu slóðum fæddist hugmyndin að því sem síðar varð 66°Norður.

Liturinn á treyjunni er innblásinn af sepia-ljósmyndum þess tíma. Appelsínuguli liturinn hefur fylgt 66°Norður frá upphafi. Hann var á fyrstu flík fyrirtækisins, sjóstakknum, þar sem hann gerði þá sýnilegri sem féllu útbyrðis á sjó, og gegnir sama hlutverki enn í dag.

„Hjá 66°Norður þarf hver flík að hafa skýran tilgang, hvort sem hann felst í tæknilegum eiginleikum, vatnsheldni eða hugmyndafræði. Þá eru sögur sem við viljum segja jafnframt stór hluti af því sem við gerum hjá 66°Norður. Í þessu verkefni var kafað í sögu Víkings og leitað leiða til að tengja hana við arfleifð og sjónræna nálgun 66°Norður. Markmiðið var að skapa flík sem hefði ekki aðeins skýran tilgang, heldur segði einnig sögu og endurspeglaði tengsl fortíðar og nútíðar. Til þess að útkoman yrði sem best fórum við í höfuðstöðvar Macron í Bologna á Ítalíu, en grafíkin og ljósmyndin sem við vildum nota á treyjunni var tæknilega flókin í útfærslu og mikilvægt að tryggja að útkoman yrði rétt,“ segir Bergur Guðnason, stjórnandi samstarfa hjá 66°Norður.

Liðsmyndin frá 1921

Úr Ísafjarðarferð Víkings 1921, liðsmyndin í sögu félagsins

Liðsmyndin frá 1921 leikur lykilhlutverk í hönnun treyjunnar.

Aftari röð frá vinstri: Helgi Eiríksson, Gunnar Bjarnason, Sverrir Forberg, Halldór Halldórsson, Óskar Norðmann, Sigurður Waage, Axel Andrésson (einn af stofnendum Víkings) og Þórður Albertsson.

Fremri röð frá vinstri: Indriði Waage, Páll Andrésson, Haraldur Aspelund, Ágúst Jónsson og Einar Baldvin Guðmundsson.

Að treyjunni komu

  • Hönnun: Bergur Guðnason fyrir hönd 66°Norður
  • Framleiðandi: Guðjón Guðmundsson
  • Ljósmyndari: Sigríður Margrét Ágústsdóttir
  • Módel: Óskar Borgþórsson og Bergdís Sveinsdóttir
  • Upptaka og klipping: Björn Steinbekk
  • Leikari: Steini Sleggja
  • Bátur: Rafnar

Við þökkum öllum sem komu að verkefninu fyrir framlag sitt. Sérstakar þakkir fá styrktaraðilar Víkings, sem gáfu allir eftir pláss sitt á treyjunni til styrktar málefninu.

Áfram Víkingur!