Knattspyrna · 23. okt 2026
Viktor Bjarki kveður Víking
Viktor Bjarki Arnarsson, aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla, lætur af störfum hjá Víkingi að loknum síðasta leik tímabilsins og heldur á nýjan vettvang.
Viktor er uppalinn Víkingur og lék 126 leiki fyrir meistaraflokk félagsins. Árið 2006 var hann valinn besti leikmaður efstu deildar og íþróttamaður Víkings, og hann lék einnig sem atvinnumaður í Hollandi og Noregi.
Haustið 2023 sneri hann aftur í Víkina sem yfirþjálfari yngri flokka og í upphafi árs 2025 varð hann aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla. Síðan þá hefur liðið orðið Íslandsmeistari tvö ár í röð, 2025 og 2026, og átti Viktor stóran þátt í þeim árangri.
Kári Árnason, yfirmaður knattspyrnumála:
„Það hefur verið mjög gott að vinna með Viktori. Hann er einstaklega vandaður maður og skilur eftir sig stórt skarð í þjálfarateyminu. Hans verður sárt saknað og ég efast ekki um að hann nær árangri í því sem hann tekur sér fyrir hendur næst. Ég þakka honum kærlega fyrir samstarfið og óska honum alls hins besta.“
Gangi þér vel Viktor og takk fyrir alla Hamingjuna 🖤❤️