Víkingur nær samkomulagi um kaup á Gunnari Vatnhamar
4. apríl 2023 | KnattspyrnaVíkingur hefur komist að samkomulagi við Víking í Götu um kaup á varnarmanninum Gunnari Vatnhamar. Gunnar er 28 ára gamall færeyskur landsliðsmaður sem hefur alla tíð leikið í Færeyjum með Víkingi í Götu.
Hann varð færeyskur bikarmeistari árin 2014 og 2015 með Víkingi og færeyskur meistari með liðinu tímabilin 2016 og 2017.
Gunnar er fastamaður í færeyska landsliðinu og hefur leikið 29 leiki fyrir þjóð sína.
Gunnar Vatnhamar er væntanlegur til landsins á næstu dögum og áætlar félagið að kynna hann formlega sem leikmann Víkings í lok vikunnar.