Víkingur

Knattspyrna · 31. okt 2026

Gylfi Tryggvason í Hamingjuna

Knattspyrnudeild Víkings hefur gengið frá tveggja ára samningi við Gylfa Tryggvason um að taka við starfi aðalþjálfara meistaraflokks kvenna hjá félaginu.

Gylfi kemur til Víkings frá Grindavík/Njarðvík, þar sem hann hefur undanfarin tvö tímabil stýrt sameiginlegu liði félaganna með afar góðum árangri. Undir hans stjórn tryggði liðið sér sæti í Bestu deildinni og náði eftirtektarverðum árangri á nýliðnu keppnistímabili. Liðið hafnaði í 5. sæti deildarinnar og lék jafnframt til úrslita í Mjólkurbikar kvenna. Gylfi hefur sýnt að hann býr yfir hæfni til að byggja upp lið, þróa unga leikmenn og skapa sterka liðsheild.

Framundan er spennandi verkefni hjá meistaraflokki kvenna í Víkingi. Félagið hefur skýran metnað til að byggja upp öflugt og samkeppnishæft lið og endurheimta sæti sitt í efstu deild.

Ráðning Gylfa markar mikilvægt skref í þeirri vegferð og ríkir mikil ánægja innan knattspyrnudeildarinnar með að hafa tryggt krafta hans til næstu tveggja ára.

Vertu hjartanlega velkominn í Hamingjuna ❤️🖤✍️

Áfram Víkingur