Víkingur

Knattspyrna · 29. okt 2026

Einar Guðnason lætur af störfum

Knattspyrnudeild Víkings og Einar Guðnason hafa komist að samkomulagi um að hann haldi ekki áfram sem aðalþjálfari meistaraflokks kvenna hjá félaginu.

Einar tók við liðinu um mitt sumar í fyrra við krefjandi aðstæður og stýrði því til áframhaldandi veru í efstu deild. Hann tók að sér mikilvægt verkefni fyrir félagið og færum við honum einlægar þakkir fyrir framlag hans, metnað og þá vinnu sem hann hefur lagt í þágu liðsins.

Einar er uppalinn Víkingur og hefur í gegnum tíðina sinnt fjölmörgum störfum fyrir félagið. Tengsl hans við Víking eru því bæði sterk og rótgróin og framlag hans nær langt út fyrir það hlutverk sem hann lætur nú af. Þótt leiðir skilji að þessu sinni í hlutverki aðalþjálfara er hann áfram hluti af Víkingsfjölskyldunni.

Knattspyrnudeild Víkings þakkar Einari kærlega fyrir samstarfið og óskar honum alls hins besta í þeim verkefnum sem fram undan eru.