Knattspyrna · 10. nóv 2026
Aron Baldvin Þórðarson lætur af störfum
Aron Baldvin Þórðarson, aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla, hefur lokið störfum hjá Víkingi. Hann tekur nú við sem aðalþjálfari Fylkis.
Aron kom fyrst til félagsins sem þjálfari í yngri flokkum. Hann þjálfaði meðal annars 4. flokk og síðar 2. flokk, þann síðarnefnda ásamt Markúsi Árna Vernharðssyni og við góðan orðstír. Árið 2022 kom hann inn í þjálfarateymi meistaraflokks karla, fyrst undir stjórn Arnars Gunnlaugssonar og síðar Sölva Geirs Ottesen. Hann hefur verið lykilmaður í teyminu og séð um leikjaundirbúning og taktíska hlið æfinganna.
Tími Arons í þjálfarateyminu er einn sá sigursælasti í sögu félagsins. Víkingur varð Íslandsmeistari 2023 og 2025, bikarmeistari 2022 og 2023 og meistari meistaranna 2022, 2024 og 2026. Í Evrópu náði liðið þeim sögulega árangri að komast í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar tímabilið 2024–25 og þaðan áfram í útsláttarkeppnina. Aron á stóran þátt í þessum árangri. Aron er Víkingur í gegn. Metnaður hans, fagmennska og ástríða fyrir leiknum hafa smitað út frá sér til leikmanna, starfsfólks og allra sem að félaginu koma. Það kemur engum á óvart að önnur félög hafi sóst eftir kröftum hans, og hann á þetta tækifæri fyllilega skilið.
Knattspyrnufélagið Víkingur þakkar Aroni Baldvin innilega fyrir frábær störf og óskar honum góðs gengis sem aðalþjálfari Fylkis.