Víkingur

Knattspyrna · 23. okt 2026

Matthías Vilhjálmsson nýr aðstoðarþjálfari Víkings

Matthías Vilhjálmsson hefur skrifað undir samning við Víking út tímabilið 2028 og tekur við starfi aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla af Viktori Bjarka Arnarssyni. Samhliða því verður hann þjálfari 2. flokks karla.

Matthías varð þrisvar Íslandsmeistari með FH og lék síðan í Noregi með Start, Rosenborg og Vålerenga. Með Rosenborg vann hann fjóra Noregsmeistaratitla og þrjá bikarmeistaratitla. Hann lék 16 A-landsleiki fyrir Ísland og skoraði tvö mörk.

Matthías kom til Víkings árið 2023 og varð Íslands- og bikarmeistari með liðinu það ár. Hann varð aftur Íslandsmeistari 2025 áður en hann lagði skóna á hilluna. Síðasta árið hefur hann þjálfað 2. og 3. flokk karla hjá félaginu.

Kári Árnason, yfirmaður knattspyrnumála:

„Viktor skilur eftir sig stórt skarð í þjálfarateyminu en við erum sannfærð um að Matti fyllir það. Matti er mesti sigurvegari í sögu íslenskrar knattspyrnu og hefur að meðaltali unnið um einn titil á ári á ferlinum. Það er eiginleiki sem við elskum í Víkingi. Við þekkjum hann vel og berum miklar væntingar til hans í nýju hlutverki.“

Velkominn í nýtt hlutverk, Matti 🖤❤️