
Kæru Víkingar. Knattspyrnudeild Víkings hóf á þessu ári að bjóða erlendum ferðamönnum upp á sérstaka leikdagsupplifun á heimaleikjum félagsins. Verkefnið hefur farið fram úr björtustu vonum og hefur orðið greinileg aukning á erlendum gestum á heimaleikjum Víkings í sumar.
Hugmyndin að baki verkefninu var að bæta nýrri og öðruvísi upplifun við þá fjölbreyttu afþreyingu sem ferðamönnum stendur til boða í Reykjavík. Fótboltinn er stór hluti af íslenskri menningu og samfélagi og með leikdagsupplifuninni fá erlendir gestir tækifæri til að kynnast íslenskum fótbolta, stemningunni á vellinum og ekki síst fólkinu sem myndar hjarta félagsins.
Við töldum að upplifun sem þessa vantaði sárlega í afþreyingarflóruna fyrir ferðamenn hér á landi. Það er því einstaklega gaman að sjá hversu vel þessu hefur verið tekið. Við höfum séð sífellt fleiri erlenda gesti á heimaleikjum okkar og viðbrögðin hafa verið mjög jákvæð
Sverrir Geirdal varaformaður knattspyrnudeildar Víkings
Sérstaklega ánægjulegt hefur verið hversu vel stuðningsmenn Víkings hafa tekið á móti nýjum gestum. Erlendir ferðamenn sem hafa sótt leikina hafa ítrekað haft orð á gestrisni, vingjarnlegu viðmóti og þeirri einstöku stemningu sem skapast á heimaleikjum félagsins.
Það verður að hrósa stuðningsmönnum okkar sérstaklega. Þeir hafa tekið þessum nýju fylgjendum opnum örmum og átt stóran þátt í að gera upplifun þeirra eftirminnilega. Nánast allir gestirnir okkar hafa nefnt hversu vingjarnlegir og gestrisnir stuðningsmenn Víkings eru. Það er eitthvað sem við getum verið mjög stolt af.
Árangurinn sést ekki aðeins í fjölgun erlendra gesta heldur einnig í því að ferðamenn líta á heimsóknina sem eitthvað sem vert er að endurtaka. Nú þegar er vitað um að minnsta kosti tvo hópa sem sóttu heimaleiki Víkings í ár og eru farnir að skipuleggja endurkomu til Íslands og á völlinn á næsta ári.
Það er kannski besta viðurkenningin sem við getum fengið. Markmiðið var ekki eingöngu að selja ferðamönnum miða á fótboltaleik heldur að skapa upplifun sem þeir muna eftir og vilja jafnvel koma aftur til að upplifa. Þegar gestir eru þegar byrjaðir að skipuleggja næstu heimsókn vitum við að við erum á réttri leið. Við höfum þegar fengið gesti frá Noregi, Englandi, Bandaríkjunum og Þýskalandi.
Meðfylgjandi eru myndir af Steve frá Fullerton California og Ana frá Mexíkó og Raby frá Belize.