
OKTÓBERFEST VÍKINGS – ÞETTA VERÐUR VEISLA!


Húsið opnar kl. 18:00

Borðhald hefst kl. 19:00
🎉Veislustjóri er enginn annar en Fannar Sveinsson úr Hraðfréttum!

Andri trúbador mætir á svæðið og sér um að halda uppi stuðinu langt fram eftir kvöldi!
Boðið verður upp á alvöru þýska Októberfest-stemningu með góðum mat frá Pylsumeistaranum og Björnsbakaríi, ekta þýskum bjórum og auðvitað frábærum félagsskap.



Miðaverð: 5.500 kr.

8 manna borð: 40.000 kr.
Það er því um að gera að sameina vinahópinn og tryggja sér 8 manna borð á góðu verði!

Happdrætti verður á staðnum og við erum með fullt af veglegum vinningum sem hægt verður að næla sér í.
Aldurstakmark: 20 ár.

Oans, zwoa, drei – PROST!
