Gunnar Vatnhamar til Vejle

Kæru Víkingar. Gunnar Vatnhamar hefur verið seldur til danska liðsins Vejle. Gunnar gekk til liðs við Víking árið 2023 og varð Íslands- og Bikarmeistari strax á sínu fyrsta ári. Hann lék samtals 119 leiki fyrir Víking og skoraði í þeim 12 mörk. Gunnar varð einnig Íslandsmeistari árið 2025 og hefur verið gríðarlega mikilvægur hluti af liðinu allt frá fyrsta leik hans fyrir félagið árið 2023.

Knattspyrnudeild Víkings óskar Gunnari Vatnhamar velgengni og hamingju í Danmörku og um leið þökkum við honum kærlega fyrir sitt framlag til félagsins.

Sjáumst fljótlega í Hamingjunni Gunnar! ❤️🖤

Aðrar greinar

Forsíðufrétt

Októberfest Víkings haldið 19. september

Forsíðufrétt

Yin Yoga með Ylfu hefst á morgun!

Forsíðufrétt, Handbolti

Stuðningsmannakvöld Víkings fer fram 1. september

Forsíðufrétt, Handbolti

Yfirlýsing handknattleiksdeildar Víkings

Forsíðufrétt, Handbolti

Gísli Steinar Jónsson gerir tveggja ára samning við Víking

Knattspyrna, Forsíðufrétt

Bergþóra Sól framlengir